
Starfsmaður í íþróttahús
Fimleikafélagið Björk leitar að starfsmanni í húsvörslu og þrif í íþróttahúsi félagsins. Leitað er eftir laghentum einstaklingi sem á auðvelt með að umgangast börn og unglinga.
Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á tvískiptum vöktum virka daga og fjórðu hverja helgi.
Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst, ekki seinna en 15.ágúst.
Nánari upplýsingar gefur Hilmar Ingimundarsson framkvæmdastjóri félagsins, [email protected].
Umsóknum og ferilskrá skal skilað á auglýsingavef Alfreð eða á [email protected]
Almenn gæsla í íþróttamannvirkinu og eftirfylgni með umgengnisreglum.
Umsjón með mannvirkjum, aðstöðu og tækjum.
Starfsmaður er iðkendum félagsins innan handar.
Önnur tilfallandi verkefni
Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
Stundvísi og almenn reglusemi
Íslenskukunnátta
Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
Hreint sakavottorð
Íslenska








