

Starfsmaður hjá Skógræktarfélagi
Skógræktarfélag Kópavogs leitar að starfsmanni til að taka þátt í uppbyggingu, rekstri og fegrun útivistasvæða, fræðslu og miðlun upplýsinga.
Verkefnin eru fjölbreytt og snúa einkum að rekstri opinna útivistasvæða.
Starfsemin fer bæði fram innan- og utanhúss.
Unnið er meðal annars við skógrækt, landgræðslu, garðyrkju, gróðursetningar trjáplantna, trjáfellingar, áburðargjöf, beðahreinsun og einfaldar trésmíðar, sópun, þrif og fræðslu.
Einn fastur starfsmaður er hjá Skógræktarfélagi Kópavogs og vinnur starfsmaður náið með honum. Yfir sumarmánuðina koma til starfa margir tugir góðra manna á öllum aldri.
Helstu skyldur:
· Starfsmaður hefur umsjón með og samskipti við sumarstarfsmenn.
· Leiðbeinir sumarstarfsmönnum um verklag og aðferðir og hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið.
· Gætir þess að ávallt liggi skýrt fyrir hvaða verkefnum eigi að sinna í samráði við framkvæmdarstjóra.
· Vinnur markviss að því að að efla liðsheild og góða líðan starfsmanna.
· Gætir þess að verkfæri séu til staðar og frágengin að loknu verki.
· Heldur utan um vinnuskýrslur og skráir í gagnagrunn.
· Kemur emur að fræðslu og miðlun upplýsinga um ýmis umhverfismál fyrir skóla og almenning.
· Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Menntun sem nýtist í starfi
· Viðkomandi þarf að vera reglusamur og búa yfir samviskusemi, stundvísi og góðum samskiptahæfinleikum og ríkri þjónustulund.
· Bílpróf
· Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
· Almenn tölvukunnátta.
· Gott vald á íslensku.
· Sterk öryggisvitund.
· Reynsla af verklegum framkvæmdum.











