Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag

Starfsmaður fræðslu- og félagsmála

Vegna aukinna verkefna óskar skrifstofa Eflingar stéttarfélags eftir að ráða tvo starfsmenn í fullt starf á sviði fræðslu- og félagsmála. Starfsmennirnir verða hluti af samhentu teymi sem starfar undir fræðslu- og félagsmálastjóra. Meginmarkmið sviðsins er fjölgun virkra félagsmanna og styrking þeirra í gegnum fræðslu, þjálfun, stuðning og þátttöku í innra starfi félagsins. Sviðið annast einnig skipulagningu fræðslu- og skemmtiviðburða fyrir alla félagsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð

Samskipti við félagsfólk og vinnustaði um fjölgun trúnaðarmanna Eflingar og aðstoð við framkvæmd á herferðum því tengt

Aðstoð við undirbúning, skipulag og eftirfylgni vegna trúnaðarmannanámskeiða

Samskipti og stuðningur við trúnaðarmenn vegna starfa þeirra

Undirbúningur, skipulag og eftirfylgni vegna innra starfs í félaginu og annarra félagslegra viðburða, s.s. fræðslu- og skemmtiviðburða

Upplýsingagjöf og kynningarvinna tengt öllu ofangreindu, þ.m.t. uppfærsla á vef og þýðingar á textum milli íslensku og ensku

Vöktun og svörun innsendra erinda tengt öllu ofangreindu

Menntunar- og hæfniskröfur

Samskiptafærni og ánægja af að vinna með fólki

Skipulögð vinnubrögð

Stúdentspróf eða auðsýnd sambærileg færni

Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta mikill kostur

Góð færni á ritvinnsluforrit og töflureikni. Frekari tölvufærni t.d. varðandi gagnagrunna, tölfræðiúrvinnslu og forritun er kostur

Reynsla og þekking varðandi stafræna miðlun s.s. vefsíðuumsjón, ljósmyndun, umbrot, grafíska hönnun o.s.frv. er kostur

Reynsla og þekking varðandi túlkun og/eða þýðingar kostur

Auðsýndur áhugi og/eða reynsla af skipulögðu félagsstarfi kostur

Reynsla af störfum með fólki af fjölbreyttum þjóðernisuppruna kostur

Auglýsing birt10. júní 2024
Umsóknarfrestur24. júní 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar