
Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin – traust og reynsla í hjólbarðaþjónustu í yfir fjóra áratugi
Dekkjahöllin er framsækið þjónustufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á hjólbörðum í yfir fjóra áratugi. Fyrirtækið rekur starfstöðvar á Draupnisgötu á Akureyri, Þverklettum á Egilsstöðum, Miðhrauni í Garðabæ, Njarðarbraut í Reykjanesbæ og í Skeifunni og Skútuvogi í Reykjavík. Á öllum stöðvum býðst fyrsta flokks hjólbarðaþjónusta, en til viðbótar eru reknar smurstöðvar á Akureyri og Egilsstöðum og þvottastöð á Akureyri. Dekkjahöllin er jafnframt öflugur innflutningsaðili á hjólbörðum frá Continental, Falken, Yokohama, Sonar og Triangle og þjónustar bæði fyrirtæki og einstaklinga um allt land.
Hjá Dekkjahöllinni starfar samheldinn hópur með mikla reynslu og þekkingu í faginu. Fjölmargir starfsmenn hafa fylgt fyrirtækinu í áratugi og samanlagður starfsaldur þeirra er til marks um gæði mannauðsins. Metnaður, þjónustulund og fagmennska eru lykilatriði í allri starfsemi, enda hefur fyrirtækið ávallt lagt áherslu á fljóta, góða og áreiðanlega þjónustu.
Við leggjum ríka áherslu á að skapa jákvæða og hvetjandi starfsmenningu sem einkennist af samvinnu, gleði og sveigjanleika. Í gegnum tíðina hefur starfsfólkið verið hornsteinn velgengni Dekkjahallarinnar og uppsöfnuð þekking þess tryggir viðskiptavinum faglega ráðgjöf og þjónustu á heimsmælikvarða.
Traust og árangur fyrirtækisins endurspeglast í viðurkenningum sem það hefur hlotið. Dekkjahöllin hefur verið valin framúrskarandi fyrirtæki af Creditinfo frá upphafi mælinga árið 2010 og hefur jafnframt verið útnefnt fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri af Viðskiptablaðinu og Keldunni frá 2017.
Starfsmannafélag fyrirtækisins stuðlar að samheldni og jákvæðri stemningu með reglulegum viðburðum og ferðalögum. Þannig styrkjum við liðsheildina sem gerir Dekkjahöllina að traustum samstarfsaðila bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði
Dekkjahöllin óskar eftir að ráða starfsmann á hjólbarða- og smurverkstæði á Akureyri. Starfið felur í sér fjölbreytta vinnu við hjólbarðaþjónustu, smurþjónustu og fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi og reynsla af bílaþjónustu kostur
Stundvísi og hæfni í mannlegum samskiptum
18 ára aldurstakmark
Bílpróf
Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt starf við hjólbarða- og smurþjónustu
Auglýsing birt7. september 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Draupnisgata 5, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
HjólbarðaþjónustaSmurþjónustaStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Okkur vantar starfsmann strax í dekkjatörnina. Starfið er tímabundið.
Arctic Trucks Ísland ehf.

Afgreiðsla í verslun Skechers
S4S - Skechers

Úthringiver
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Sölufulltrúi
Húsgagnahöllin

Útilíf - Sölustarf í verslun
Útilíf ehf.

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Fullnægjandi hlutastarf í nýrri verslun Blush
Blush

Hönnun og ráðgjöf á skiltum og merkingum
Signa ehf

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni
Þjónustumiðstöð Kópavogs

Bifvélavirki / reyndur bílaáhugamaður óskast einn dag í viku
Bílasafn

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.