Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Starfsmaður á heimili fyrir fatlaða í Fjarðabyggð

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til sumarstarfa í búsetuþjónustu fyrir fatlaða á Reyðafirði eða á Neskaupsstað. Unnið er eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Vinnan felst í því að aðstoða einstaklinga, eftir þörum, við athafnir daglegs lífs, hjálpa þeim að skipuleggja og halda uppi heimili, ásamt því að veita þeim aðstoð við að vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu í íbúðarkjarna fyrir fatlaða þar sem veitt er sólahringsþjónusta, svo einstaklingur þarf að geta unnið dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir. Í boði er 60-85% starf tímabundið í skemmtilegu starfsumhverfi ásamt fjölbreyttum verkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og vilji til að starfa með fólki.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, sjálfstæði og samviskusemi.
Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
Hreint sakavottorð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
Starfa samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu.
Fríðindi í starfi
Íþrótta- og tómstundastyrkur
Auglýsing birt6. júní 2023
Umsóknarfrestur25. júní 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Búðareyri 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar