Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð.
Starfið er 30% og unnið er önnur hver helgi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Almenn heimilisstörf og eldamennska
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Góð íslenskukunnátta
- Ágætis tölvukunnátta
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Framtakssemi og samviskusemi
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað
Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, Forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-5344, netfang: ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2024
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.