Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann til starfa við þjónustu á heimili fyrir fatlað fólk.

Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi.

Í boði er spennandi og fjölbreytt starf í vaktavinnu. Um er að ræða 60–90% starfshlutfall í tímabundna afleysingu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar-, kvöld- og næturvaktir og gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið [email protected] eða í síma 585-5720.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 31. desember 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Auglýsing birt15. desember 2025
Umsóknarfrestur31. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar