

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 90% starf í utankjarna og tímabundna afleysingu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Sinna heimilisstörfum
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Ágætis tölvukunnátta
- Ökuréttindi skilyrði
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið [email protected] eða í síma 585-5765.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 17. desember 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Íslenska


















