

Starfsfólk í umönnun á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa starfsfólk í umönnun á Hlévangi.
Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
-
Umönnun og aðstoð við daglegar athafnir skjólstæðinga
-
Stuðningur við vellíðan og félagslega virkni skjólstæðinga
-
Samvinna við starfsfólk í þverfaglegri teymi
-
Reynsla af störfum í umönnun er kostur
-
Reynsla af vinnu með öldruðum er kostur
-
Góð samskiptahæfni
-
Fagleg, skipulögð og öguð vinnubrögð
-
Gott vald á íslensku
-
Þjónustulund og jákvæðni
-
Lágmarksaldur er 18 ár
Enska
Íslenska














