
Sumarstörf - Kópavogsbær
Kópavogsbær býður upp á fjölbreytt sumarstörf á hverju ári fyrir 18 ára og eldri. Í boði eru m.a. störf í Þjónustumiðstöð, garðyrkju, skógrækt, sundlaugum, íþróttavöllum, sumarnámskeiðum fyrir börn, skapandi sumarstörf og á bæjarskrifstofum svo eitthvað sé nefnt.

Sumarstarf á heimili fatlaðs fólks
Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri, til starfa á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem skal tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins.
Við leitum að fólki í sumarstörf í 70- 80% hlutfall í vaktavinnu á tímabilinu 1.júlí
Helstu verkefni og ábyrgð
- Persónulegur stuðningur og aðstoð við athafnir daglegs lífs, jafnt innan sem utan heimilis.
- Vera góð fyrirmynd.
- Stuðla að sjálfstæði íbúa.
- Almennt heimilishald.
- Samvinna við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
- Fjölbreytt verkefni.
- Geta til að starfa undir álagi þar sem starfið getur verið líkamlega og andlega krefjandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur.
- Tveggja ára nám á framhalsskólastigi og eða reynsla sem nýtist í starfi er æskilegt.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
- Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
- Framtakssemi, frumkvæði, stundvísi og jákvætt viðhorf í starfi.
- Starfað er í anda þeirra meginhugmynda er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
- Bílpróf er kostur.
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Marbakkabraut 14, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarkona óskast á morgunvaktir
NPA miðstöðin

Skemmtilegt starf á Íbúðakjarna í Breiðholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Aðstoðarmaður deilda - 80 - 100% starf
MS Setrið

Tanntæknir/aðstoð á tannlæknastofu.
Tannsinn ehf.

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Hjúkrunarfræðingur/Ljósmóðir óskast í dagvinnu
Livio Reykjavík

Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

NPA aðstoðarfólk óskast
NPA miðstöðin

Starfsfólk óskast í umönnun
Heilsuvernd Vífilsstaðir