

Starfsfólk í eldhús og býtibúr á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða jákvæða og þjónustulundaða einstaklinga í eldhús og býtibúr á Hlévangi í Reykjanesbæ.
Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu.
Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
-
Aðstoð við máltíðir skjólstæðinga
-
Aðstoð við matargerð og skömmtun
-
Aðstoð við pantanir og frágang á vörum
-
Uppvask og þrif í eldhúsi og býtibúri
-
Önnur tilfallandi störf
-
Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
-
Snyrtimennska
-
Sjálfstæði, skipulögð og öguð vinnubrögð
-
Góð samskiptahæfni
-
Þjónustulund og jákvæðni
-
Gott vald á íslensku
-
Lágmarksaldur er 18 ár
Enska
Íslenska














