Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Yfirmatráður á Bergi í Bolungarvík

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða yfirmatráð í eldhúsið á Bergi hjúkrunarheimili í Bolungarvík. Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er á vöktum frá 8-14 og aðra hverja helgi. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund. Á Bergi starfar samhentur og glaðlyndur hópur þar sem lögð er áhersla á samvinnu og fagmennsku. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst en annars eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Matargerð í mötuneyti og gerð matseðla. Innkaup og umsjón með matarbirgðum. Verkstjórn aðstoðarstarfsfólks. Umsjón með þrifum, tækjum og búnaði í eldhúsi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla sem matráður eða úr sambærilegu starfi.

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

  • Góð íslenskukunnátta.

Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur23. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Miðstræti 1, 415 Bolungarvík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar