Fagrabrekka
Fagrabrekka
Fagrabrekka

Aðstoðarmatráður í Fögrubrekku

Aðstoðarmatráður starfar með matráði í eldhúsi leikskólans og sér auk þess um þvott og frágang og heldur kaffistofu snyrtilegri.

Ráðið er í starfið frá 10. ágúst næstkomandi og starfshlutfall er 90%. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Þau sem eru ráðin til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um þrif á eldhúsi samkvæmt Gámes þrifaáætlun – gólfþrif undanskilin.  

  • Sér um þvotta, frágang og heldur þvottahúsi og vélum snyrtilegum.  

  • Sér um uppvask.  

  • Situr starfsmannafundi eftir þörfum.  

  • Heldur kaffistofu snyrtilegri.  

  • Hefur góða samvinnu við allar deildir leikskólans jafnt börn sem starfsfólk.  

  • Aðstoðar í þeim verkefnum sem til falla í eldhúsi t.d. að færa upp matinn, sjá um meðlæti, setja á vagna og fleira.  

  • Í forföllum matráðs tekur viðkomandi upp starfslýsingu matráðs og tekur einnig fullan þátt í matseld þegar þörf er á. 

  • Sinnir öðrum þeim störfum sem yfirmaður felur honum. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti. 

  • Sjálfstæð vinnubrögð. 

  • Snyrtimennska. 

  • Áhugasemi og ábyrgðarkennd. 

  • Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi
  • Frítt í sund í sundlaugum Kópavogsbæjar
  • Styttri vinnuvika
  • Frítt fæði
  • Íþróttastyrkur
Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fagrabrekka 26, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar