Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.
Starfsfólk í flokkun og eftirvinnslu
Terra Efnaeyðing leitar að öflugu starfsfólki til að vinna við flokkun og eftirvinnslu sendinga. Leitað er eftir duglegum og kraftmiklum einstaklingum sem eru góðir í samvinnu og þjónustulundaðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, flokkun og meðhöndlun spilliefna og annarra úrgangsefna
- Skráning og flokkun efna
- Úrvinnsla/rúmmálsminnkun
- Þrif á athafnasvæði
- Frágangur rafgeyma og annarra flokka til útflutnings
- Ýmis tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Jákvæðni og þjónustulund
-
Góðir samskiptahæfileikar
-
Íslenska- og/eða enskukunnátta
-
Vinnuvélaréttindi og/eða meirapróf er kostur
Auglýsing stofnuð26. júní 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Berghella 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiStundvísiTeymisvinnaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Starfsfólk í afgreiðslu og pizza gerð
BlackBox Pizzeria
Afgreiðslustarf Skeifunni 7
KiDS Coolshop
We are looking for service and kitchen staff at KEF airport
SSP Iceland
Orkan Vesturlandsvegi - skemmtilegt hlutastarf
Orkuverslun
BYKO Akureyri: Starfsmaður í timburskýli
Byko
BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í timbri og lögnum
Byko
Liðsfélagi á lager
Marel
Experienced construction worker - Byggingaverkamaður
Einingaverksmiðjan
Verslunarstjóri óskast
Ný ísbúð
Útilíf Kringlunni og Smáralind - Fullt starf
Útilíf
Rannsókn og hjólaskófla - Sumarstarf
Steypustöðin
Asphalt repair and landscape work
GSG ehf.