Nýr Landspítali ohf.
Nýr Landspítali ohf.

Staðarverkfræðingur

Leitað er að staðarverkfræðing sem er menntaður í verk- eða tæknifræði til að leiða eitt af byggingarverkefnum Nýs Landspítala við Hringbraut. Krafist er minnst tíu ára reynslu á sviði verkefnastjórnunar verklegra framkvæmda, eftirlits, hönnunar eða sambærilegra verkefna sem NLSH vinnur að. Umsækjandi skal hafa reynslu af þátttöku í stærri framkvæmdaverkum s.s. opinberum framkvæmdum ríkis- eða sveitarfélaga og þekkja vel til öryggis- og umhverfismála. Kostur er að hafa eða geta sóst eftir byggingarstjóraréttindum. Krafist er góðrar samskiptafærni á íslensku og ensku, sjálfstæði í starfi, frumkvæði og metnaðar til að ná árangri.

Við leitum að starfsmanni til að annast m.a.:

  • Stýringu framkvæmda af hálfu verkkaupa
  • Verkefnastjórnun og verkskipulagningu framkvæmdasamninga
  • Áætlunar- og kostnaðareftirlit framkvæmdaverka
  • Áhættugreiningu og áhættuvöktun framkvæmdaverka
  • Hönnunarrýni verklýsinga og teikninga
  • Verkeftirlit og úttektir einstakra verka

Nýr Landspítali ohf. (NLSH) tekur m.a. þátt í verkefnastjórn á þróunar-, hönnunar- og framkvæmdaverkefnum vegna húsnæðis Landspítala Háskólasjúkrahúss sem og uppbyggingu nýbygginga, gatnagerðar og lóðar við nýjan Landspítala við Hringbraut, nýbyggingu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands svo og stækkun Grensás.
Félagið, sem er að fullu í eigu ríkisins, er í samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila m.a. stjórnvöld, Landspítalann, Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir, Háskóla Íslands, sjúklingasamtök, Reykjavíkurborg og Ríkiskaup. Fjöldi ráðgjafa starfar fyrir og með NLSH. Nánari upplýsingar um NLSH má finna á www.nlsh.is.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Allar umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega.

Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt10. júní 2022
Umsóknarfrestur28. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skúlagata 21, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar