

Staðarhaldari í Básum
Ferðafélagið Útivist leitar nú að staðarhaldara í Básum
Starfið er heilsársstarf og felur í sér ábyrgð og umsjón með rekstri skála, veitingasölu og tjaldsvæðis Útivistar í Básum á Goðalandi (Þórsmerkursvæði) ásamt verkstjórn yfir skálavörðum og öðrum starfsmönnum sem ráðnir eru yfir sumartímann. Yfir sumartímann er vinnustöð í Básum en utan þess tíma eftir atvikum einnig á skrifstofu Útivistar í Reykjavík eða eftir samkomulagi.
Við leitum að ábyrgum og sjálfstæðum aðila, með leikni í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund. Starfið felur í sér mannaforráð og reynsla af stjórnun er mjög æskileg. Einnig er mikill kostur að viðkomandi sé handlaginn og geti bjargað sér vel við smávægilegt viðhald á afskekktum slóðum. Mikilvægt er að geta unnið vel undir álagi.
- Umsjón með allri starfsemi í Básum.
- Allur undirbúningur fyrir sumarvertíð, ss mannaráðningar og samningar við birgja.
- Verkstjórn yfir skála- og tjaldvörðum og ber ábyrgð á störfum þeirra.
- Yfirumsjón með rekstri veitingasölu.
- Ber ábyrgð á daglegum uppgjörum og skilum á gögnum.
- Tryggja að tækjabúnaður á staðnum sé ávallt í góðu ástandi.
- Aðkoma að markaðssetningu og frumkvæði í þeim málum.
- Menntun sem nýtist í starfi
- Við leitum að aðila með reynslu af mannaforráðum og stjórnun.
- Reynsla af ferðaþjónustu eða skálarekstri æskileg ásamt þekkingu á útivist.
- Þekking á markaðssetningu æskileg.
- Viðkomandi þarf að vera handlaginn og hafi lag á viðhaldi ýmissa tækja og húsakosts.
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvægur eiginleiki.
- Viðkomandi þarf hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu.
Íslenska
Enska








