Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Spennandi sumarstarf hjá Liðsaukanum

Vesturmiðstöð óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í sumarafleysingar í sértæku búsetuteymi fyrir fatlað fólk. Um er að ræða nýja nálgun í búsetuþjónustu þar sem einstaklingum gefst tækifæri til að búa sjálfstætt víðsvegar um Reykjavíkurborg. Áhersla er lögð á notendasamráð og unnið er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn, valdeflingu og skaðaminnkun.
Starfshlutfall er 85% eða eftir nánara samkomulagi, en almennt er unnið á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun.
Reynsla af starfi með einstaklingum á einhverfurófi æskileg.
Reynsla af starfi með einstaklingum með hegðunar- og/eða fíknivanda æskileg.
Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Íslenskukunnátta B1 í samræmi við samevrópskan matskvarða.
Bílpróf.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samstarf við notendur og aðstandendur.
Framfylgir þjónustuáætlunum og verklagsreglum í samráði við teymisstjóra og forstöðumann.
Veitir einstaklingsmiðaðan stuðning við heimilishald og athafnir daglegs lífs, svo sem afþreyingu og tómstundir.
Hvetur og styður til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Auglýsing birt14. júní 2022
Umsóknarfrestur28. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 6, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar