
Sóltún hjúkrunarheimili
Sóltún hóf störf í janúar 2002 og var fyrsta hjúkrunarheimilið á landinu sem fór í einkaframkvæmd. Við bjóðum upp á hjúkrun, heilsueflingu og stuðning en í dag eru rekin tvö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, Sóltún í Reykjavík og Sólvangur í Hafnarfirði sem opnaði árið 2019. Auk heimilanna tveggja er boðið upp á heimaþjónustu, endurhæfingu, dagdvöl og dagþjálfun.
Heimilisandi og virðing fyrir einkalífi hvers skjólstæðings er ráðandi í okkar starfi en einnig öryggiskennd íbúanna sem hlýst með sambýli við aðra og sólarhrings hjúkrunarþjónustu.
Athafnir daglegs lífs eru viðfangsefni á hvoru heimili fyrir sig. Áhersla er lögð á þátttöku íbúa og aðstandenda þeirra eftir getu, óskum og vilja hvers og eins.

Sóltún - hjúkrunarfræðingur
Brennur þú fyrir eldri borgurum, skemmtilegu samstarfsfólki og ert hjúkrunarfræðingur, þá erum við að leita að þér.
Fjölbreytt verkefni í boði í góðu starfsumhverfi og hentugri stærð starfseininga. Framundan er spennandi uppbygging sem býður uppá frekari tækifæri. Við bjóðum íþróttastyrk, samgöngustyrk, fatapening og niðurgreiddan hádegismat.
Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall er samkomulagsatriði. Staðan er laus í lok sumars. Íslenskukunnátta er skilyrði.
Í Sóltúni eru hjúkrunarfræðingar lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing, gleði, öryggi og vellíðan eru leiðarljós í leik og starfi.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð íslenskukunnátta
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði, frumkvæði og faglegur metnaður
- Jákvætt viðmót
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björk Sigurðardóttir, forstöðumaður Sóltúni; [email protected]
Hlökkum til að heyra frá þér.
Auglýsing birt21. maí 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á útskriftardeild aldraðra
Landspítali

Óskum eftir starfsfólki í umönnun aldraðra
Seltjörn hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingur á hjúkrunarheimilið Seltjörn
Seltjörn hjúkrunarheimili

Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild/ dagdeild gigtar
Landspítali

Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á stofu kjálkaskurðlækna
Breiðaklöpp slf.

Skurðhjúkrunarfræðingur / hjúkrunarfræðingur á skurðstofu
Klíníkin Ármúla ehf.

Skurðhjúkrunarfræðingur og hjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali