Sölustarf í persónu (Face to face)
Um er að ræða sölustarf í persónu (face to face).
Unnið er frá kl. 13:00-18:00, 16:45-21:00 eða 13:00-21:00.
Starfið er mjög vel launað. Allt frá 40%-100% Starf í boði.
Vilt þú:
- Vera á skemmtilegum og gefandi vinnustað?
- Upplifa tillitssemi og skilning í vinnu?
- Vinna á sveigjanlegum vinnutíma með góð launatækifæri?
- Hafa áhrif á nærumhverfið þitt?
Ef svo er, þá viljum við endilega fá þig í vinnu!
Starfsumhverfi
Við leggjum mikið upp úr öflugu félagslífi og starfsánægju. Við trúum því að það á að vera gaman í vinnunni og leggjum áherslu á gott þjálfunarferli fyrir nýtt starfsfólk.
Starfsemi
Við erum markaðsfyrirtæki sem vinnur með íslenskum hjálparsamtökum að því að gera heiminn að betri stað.
Hlutverkið
Starfið felur í sér fjölbreytt samskipti í persónu fyrir hjálparsamtök. Þetta er gefandi starf sem kennir dýrmæta þekkingu á sannfæringu og sölu.
Ef þú hefur áhuga á að vera hluti af okkar frábæra teymi, sendu inn umsókn. Við hlökkum til að heyra frá þér!
Sölustarf