
Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.

Söluráðgjafi í fasteignaþjónustu og viðhaldsverkefnum
Dagar leita að kraftmiklum og þjónustulunduðum söluráðgjafa.
Starfið felst í sölu á þjónustu tengdri fasteignaumsjón, viðhaldsræstingum og sérverkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Leitað er að reynslumiklum einstaklingi með góða innsýn í atvinnulífið, sterkan rekstrarskilning og hæfni til að greina þarfir viðskiptavina og byggja upp traust og langtíma viðskiptasambönd.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á þjónustu á sviði fasteignaumsjónar, viðhalds og sérverkefna
- Þróun og stækkun viðskipta við núverandi viðskiptavini með áherslu á virðisaukandi lausnir
- Uppbygging og þróun langtímasamstarfs við viðskiptavini
- Regluleg samskipti og heimsóknir til lykilviðskiptavina
- Ábyrgð á tilboðsgerð og eftirfylgni
- Greining og mótun nýrra viðskiptatækifæra
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstakling sem:
- Hefur reynslu af því byggja upp, þróa og viðhalda viðskiptasamböndum
- Hefur reynslu af sölu og ráðgjöf á þjónustu við fyrirtæki, kostur ef hún er á sviði fasteigna, viðhalds og byggingariðnaðar
- Er sjálfstæður og drífandi
- Hefur metnað til að ná árangri og byggja upp traust og langtímasamstarf við viðskiptavini.
Kostur ef viðkomandi hefur:
- Iðnmenntun eins og smíði, rafvirkjun eða annað
- Þekkingu á framkvæmdum og fasteignamarkaði
- Reynsla af þjónustusölu B2B
Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 17, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Viltu verða stór partur af ört vaxandi fyrirtæki?
Heimavöllurinn media ehf.

Sölufulltrúi - Fullt starf
Byggt og búið

Sölustjóri Porsche á Íslandi
Porsche á Íslandi

Sölufulltrúi
Aveda

Söluráðgjafi í söludeild
Arion banki

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Söluráðgjafi með keppnisskap óskast.
Porsche á Íslandi

Úthringistarf hjá Tryggingamiðlun Ísland
Tryggingamiðlun Íslands

Afgreiðsla í verslun / Viðgerðarmaður / Bike Mechanics
Markið

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Þjónusturáðgjafi hjá Gengli ehf.
Gengill ehf.

Icewear Þingvöllum óskar eftir sumarstarfsfólki
ICEWEAR