

Viltu verða stór partur af ört vaxandi fyrirtæki?
Við hjá Heimavellinum leitum að réttu manneskjunni til að verða stór partur af rekstrinum og vaxa með fyrirtækinu.
Þetta er ekki hefðbundið sumarstarf í verslun. Við erum ungt og ört vaxandi fyrirtæki þar sem allir taka þátt í öllu og rétt manneskja fær mikið traust, ábyrgð og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í starfi.
Heimavöllurinn er fyrirtæki sem hefur frá upphafi lagt áherslu á þjónustu, upplifun og ferska nálgun á fótbolta- og íþróttamarkaðnum. Verslunin var stofnuð og rekin af konum og mikið lagt upp úr góðri stemningu, sterkri liðsheild og jákvæðu vinnuumhverfi.
Starfið snýst fyrst og fremst um að þjónusta viðskiptavini í versluninni og skapa góða upplifun fyrir fólkið sem kemur til okkar á hverjum degi. Við leitum því að einstaklingi sem elskar að vinna með fólki, hefur góða orku og nýtur þess að vera í lifandi umhverfi.
Rétta manneskjan í þetta starf er einstaklingur sem:
- hefur gaman af því að taka ábyrgð
- vinnur vel sjálfstætt og tekur frumkvæði
- hefur gaman af því að koma með hugmyndir og taka þátt í að þróa fyrirtækið áfram
- er þjónustumiðaður og söludrifinn
- hefur metnað og góða orku
- vill hafa raunveruleg áhrif í litlu og metnaðarfullu fyrirtæki
Þekking á fótbolta er alls ekki aðalatriðið.
Persónuleiki, þjónustulund, kraftur, vinnusemi og frumkvæði skipta okkur mun meira máli.
- Þjónusta við viðskiptavini í verslun
- Aðstoð við daglegan rekstur
- Afgreiðsla netpantana
- Undirbúningur verslunar fyrir daginn
- Móttaka sendinga og hóppantana
- Halda verslun snyrtilegri
- Aðstoða við fjölbreytt verkefni þegar rólegra er í versluninni
- Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af samfélagsmiðlum
Viðkomandi þarf að geta tekið ábyrgð og haldið góðu flæði í versluninni þegar mikið er að gera.
- 20 ára eða eldri
- Reynsla af þjónustu og/eða sölu er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði er nauðsynlegt
- Kraftur og góð samskiptahæfni
- Ábyrg og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla/áhugi á samfélagsmiðlum er kostur
Íslenska
Enska










