Porsche á Íslandi
Porsche á Íslandi
Porsche á Íslandi

Sölustjóri Porsche á Íslandi

Viltu vinna með einum framsæknasta og flottasta bílaframleiðanda heims?

Porsche á Íslandi leitar að öflugum og kappsömum einstakling í starf sölustjóra. Sölustjóri þarf að hafa reynslu af bílamarkaðinum, vera skipulagður í vinnubrögðum ásamt því að búa yfir leiðtogahæfileikum og hafa reynslu af sölustörfum.

Starfssvið:

  • Ber ábyrgð á mótun stefnu og markmiða söludeildar Porsche
  • Ber ábyrgð á gerð söluáætlana og eftirfylgni þeirra í samstarfi við markaðsstjóra
  • Stýrir sölufundum
  • Ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi söludeildar
  • Yfirumsjón með tilboðsgerð og uppítökum
  • Vinnur með vörumerkjastjóra Porsche að pöntunum á nýjum bílum
  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sölustjórnun
  • Þekking á bílamarkaðinum
  • Leiðtogahæfileikar og frumkvæði til að ná árangri
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð Excel og almenn tölvukunnátta
  • Góð enskukunnáta í töluðu og rituðu máli
  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina


Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Benediktsson á netfanginu [email protected].

Porsche á Íslandi er hluti af Bílabúð Benna sem 50 ára fjölskyldufyrirtæki. Bílabúð Benna ehf. er umboðsaðili nýrra bíla frá Porsche og KGM en systurfélög þess eru Nesdekk og Sixt bílaleiga.

Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Krókháls 9, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar