Sölumaður og sérfræðingur í markaðssetningu
Við leitum að árangursdrifnum sölumanni sem hefur áhuga fyrir sölu- og markaðssetningu á netinu, þekkir inn á netverslanir og hefur áhuga á að byggja upp og efla vörumerkið okkar.
Bláberg (https://blaberg.is/) er ört vaxandi fyrirtæki sem leggur áherslu á að selja og markaðssetja útimyndavélar, öryggiskerfi og fleiri tæknivörur.
Hlutverkið felst í sölu, samskiptum, tilboðsgerð og þjónustu við viðskiptavini, framkvæmd og eftirfylgni með markaðsmálum og samskipti við núverandi viðskiptavini. Koma með hugmyndir að markaðsaðgerðum fyrir ólíka miðla t.d. shopify, mailchimp, Meta business suite, Google ads, markpóstaherferðir í gegnum mailchimp og shopify.
Háskólamenntun með áherslu á viðskipta- og/eða markaðsfræði er kostur. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri þekkingu og áhuga á notkun samfélagsmiðla til markaðssetningar. Hafa áhuga á að kynna sér notkun á öryggiskerfum okkar og öryggismyndavélum til að geta svarað betur spurningum viðskiptavina.
Bláberg er netverslun og því þarf viðkomandi að hafa mikinn áhuga á samskiptum og að aðstoða viðskiptavini. Reynsla á notkun helstu samfélagsmiðla í markaðsstarfi s.s. Facebook, Instagram, TikTok, Meta business suite, Google ads er kostur. Einnig er þekking á Shopify og Klaviyo markpóstaforritinu kostur.
Býr yfir framúrskarandi samskiptahæfileikum
Er árangursdrifin/n og lausnarmiðaður/uð og vill auka þekkingu sína á nýjum sviðum
Hefur góða íslenskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu máli
Er tæknilega sinnaður og fljót/fljótur að læra
Vinnur vel í teymi, á gott með samskipti og hefur jákvæðni og gleði í fyrirrúmi
Er sveiganleg/ur og skapandi
Sveigjanleiki er stór kostur í þessu starfi.