

Sölufulltrúi
REIN leitar að öflugum og þjónustulunduðum sölufulltrúa í 60–100% starf.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á hönnun, efnisvali og góðri þjónustu og vill taka þátt í fjölbreyttu starfi hjá ört vaxandi framleiðslufyrirtæki. Starfið felur í sér ráðgjöf og sölu til viðskiptavina, utanumhald verkefna fásamt þátttöku í uppbyggingu nýs vöruflokks hjá fyrirtækinu.
REIN er lítill og kraftmikill vinnustaður þar sem starfsmenn vinna náið saman og verkefnin eru fjölbreytt. Því leitum við að einstaklingi sem hefur frumkvæði, getur unnið sjálfstætt og hefur gaman af því að finna lausnir.
Helstu verkefni
Ráðgjöf og sala á borðplötum
- Veita viðskiptavinum faglega ráðgjöf við val á steini fyrir eldhús, baðherbergi og önnur rými.
- Aðstoða við val á litum, áferð og efnum með hliðsjón af innréttingum, gólfefnum, heildarhönnun og þörfum viðskiptavinar.
- Kynna mismunandi steintegundir, eiginleika þeirra og möguleika fyrir viðskiptavinum.
- Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við viðskiptavini REIN.
Tilboðsgerð og verkefnaumsjón
- Útbúa tilboð á grundvelli innréttingateikninga, arkitektateikninga og annarra gagna frá viðskiptavinum.
- Meta umfang verkefna og tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir áður en verkefni fara í framleiðslu.
- Fylgja verkefnum eftir frá fyrstu fyrirspurn og tilboðsgerð, í gegnum framleiðsluferlið og þar til uppsetningu er lokið.
- Vera tengiliður viðskiptavinar við REIN á öllum stigum verkefnisins.
- Vinna náið með framleiðslu- og uppsetningarteymi fyrirtækisins.
Viðskiptavinahópur REIN er fjölbreyttur og felur meðal annars í sér einstaklinga, arkitekta, innanhússhönnuði, byggingaraðila og innréttingafyrirtæki.
Samskipti við birgja
- Samskipti við erlenda birgja REIN.
- Aðkoma að vörupöntunum og eftirfylgni þeirra.
- Aðstoð við skipulag og móttöku sendinga til landsins.
- Eftirfylgni með vörum, afhendingartímum og öðrum atriðum tengdum innkaupum.
Uppbygging á sölu Franke eldhústækja
Mikilvægur hluti starfsins verður þátttaka í uppbyggingu nýrrar stoðar í rekstri REIN: sölu á eldhústækjum og tengdum vörum frá svissneska framleiðandanum Franke.
Vöruframboðið mun meðal annars ná til helluborða, vaska, blöndunartækja, ofna og vínkæla.
Viðkomandi mun taka virkan þátt í að byggja upp þekkingu, sölu og þjónustu í kringum vörurnar og þróa þennan hluta starfseminnar með fyrirtækinu. Þetta er því gott tækifæri fyrir einstakling sem hefur áhuga á sölu og viðskiptaþróun og vill hafa áhrif á hvernig nýr vöruflokkur er byggður upp frá grunni.
Við leitum að einstaklingi sem
- hefur ríka þjónustulund og á auðvelt með samskipti við ólíka viðskiptavini
- hefur áhuga á hönnun, innréttingum, efnisvali og fallegum lausnum
- er skipulagður og nákvæmur í vinnubrögðum
- getur lesið og unnið út frá innréttinga- og arkitektateikningum, eða hefur áhuga og getu til að tileinka sér það
- getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á verkefnum
- sýnir frumkvæði og fylgir verkefnum eftir
- hefur jákvætt hugarfar og lausnamiðaða nálgun
- er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni sem geta komið upp í daglegum rekstri lítils framleiðslufyrirtækis
- hefur góða íslensku- og enskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu máli.
Reynsla af sölu, ráðgjöf, innréttingum, byggingariðnaði, arkitektúr eða sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði. Við leggjum mikla áherslu á viðhorf, samskiptahæfni, sjálfstæði og vilja til að læra.
Við bjóðum
- 60–100% starf, með möguleika á að aðlaga starfshlutfall að réttum einstaklingi.
- Fjölbreytt og sjálfstætt starf þar sem hægt er að hafa raunveruleg áhrif.
- Tækifæri til að byggja upp nýjan hluta starfseminnar samhliða stjórnendum fyrirtækisins.
- Náin kynni af hönnun, innréttingum, náttúru- og kvarsefnisteini og vönduðum eldhúslausnum.
- Starf í litlu og metnaðarfullu fyrirtæki þar sem boðleiðir eru stuttar.
- Möguleika á árangurstengdum bónusgreiðslum til viðbótar við föst laun.
Íslenska
Enska










