Vinnvinn
Vinnvinn

Skrifstofuumsjón

Traust og gott fyrirtæki óskar eftir að ráða áreiðanlegan og þjónustulundaðan aðila í skrifstofuumsjón og móttöku. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni og vera tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með skrifstofu og móttaka gesta.
  • Undirbúningur funda, þ.e. fundarherbergja, og frágangur að fundi loknum.
  • Almenn umsjón með skrifstofu og ganga úr skugga um að það sé ávallt snyrtilegt.
  • Innkaup vegna skrifstofu, svo sem matarinnkaup, innkaup á skrifstofubúnaði, ræstivörum o.fl., auk almenns birgðahalds.
  • Tengiliður við öryggismiðstöðina vegna öryggiskerfis.
  • Aðstoð við skipulagningu viðburða á vegum fyrirtækisins.
  • Ýmis samskipti við þjónustufyrirtæki símleiðis og í tölvupósti, t.d. bókhaldsþjónustu, símafyrirtæki, sorphirðu o.s.frv. 
  • Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla sambærilegum störfum er æskileg.
  • Reynsla af bókhaldstengdum störfum er kostur.
  • Þagmælska, heiðarleiki og góð samskiptahæfni.
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Frumkvæði, metnaður, nákvæm og öguð vinnubrögð.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt18. júní 2025
Umsóknarfrestur30. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)