Ritari
Ritari

Starfsmaður í þjónustuver á Akranesi

Fjölbreytt og skemmtilegt starf

Ritari leitar eftir jákvæðum og drífandi einstakling í starf þjónustufulltrúa í þjónustuver hjá fyrirtækinu á Akranesi.

Í starfinu felst þjónusta við fjölda fyrirtækja og viðskiptavina. Það er í formi símsvörunar, bókana, úthringinga, og annarra tilfallandi verkefna.

Mjög fjölbreytt starf í skemmtilegu umhverfi.

Leitað er eftir starfsmanni í 90-100% stöðu á dagvinnutíma milli kl. 8:00 og 16:00.

Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf í lok júlí byrjun ágúst.

Ritari býður upp á heildarlausnir í skrifstofurekstri. Við leitumst við að aðstoða fyrirtæki og rekstraraðila við að ná fram hagræðingu og hagkvæmni í rekstri. Við leggjum áherslu á góða persónulega þjónustu, gagnkvæmt traust og góð samskipti.

Við sérhæfum okkur á sviði ritaraþjónustu, símsvörunar, úthringinga og bókhaldsþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun
  • Tímabókanir
  • Skráningarvinna
  • Úthringingar
  • Tilfallandi ritarastörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta bæði í ritun og tali
  • Góð enskukunnátta bæði í ritun og tali
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Rík þjónustulund
  • Dugnaður, frumkvæði og jákvæðni.
Fríðindi í starfi
  • Íþróttastyrkur
Auglýsing birt17. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar