

Skrifstofustarf í Innflutningsdeild
Smyril Line Cargo óskar eftir töluglöggum hörkuduglegum starfsmanni í fullt starf á starfstöð sína í Reykjavík.
Starfið felur í sér dagleg störf í innflutningsdeild og felur í sér farmskrár, reikningagerð og almenna viðskiptaþjónustu.
Vinnutími er 8:30 til 16:30 virka daga og lengur eftir þörfum. Starfið hæfir báðum kynjum.
Starfsmaðurinn þarf að hafa:
- Góða samskiptahæfileika og ríka þjónustulund
- Jákvæðni, heiðarleika og stundvísi
- Góða almenna tölvukunnáttu
- Kunnátta á Navision æskileg og góð kunnátta á excel
- Íslensku og ensku kunnátta æskileg
- Reynsla úr sambærilegum störfum æskileg
- Góð skipulagshæfni
- Vera dugleg/duglegur
- Umsóknarfrestur er til og með 23.09 n.k. í gegnum vef Alfreðs.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Smyril Line Cargo er flutningafyrirtæki sem á og rekur sex skip í áætlunarsiglingum um N-Atlantshafið. Þrjú af þeim sigla til og frá landinu. Norrænu sem siglir milli Hirtsals í Danmörk, Tórshavn í Færeyjum og Seyðisfjarðar. Mykines sem siglir milli Þorlákshafnar og Rotterdam og Mistral sem siglir milli Hirtshals í Danmörk til Þorlákshafnar. Smyril Line Cargo er framsækið og skemmtilegt fyrirtæki.











