
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Skipulagssvið Akureyrarbæjar
Laust er til umsóknar spennandi starf verkefnisstjóra skipulagsmála á skipulagssviði Akureyrarbæjar.
Helstu verkefni skipulagssviðs eru skipulagsmál, byggingareftirlit, lóða- og fasteignamál.
Menntunar- og hæfniskröfur
Gerð er krafa um háskólamenntun (ba., bs.) í arkitektúr, landslagsarkitektúr, skipulagsfræði, landfræði, eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
Sérmenntun á sviði skipulagsmála æskileg.
Starfsreynsla á sviði skipulagsmála er æskileg.
Þekking á opinberri stjórnsýslu og verklagi er æskileg.
Góð almenn tölvukunnátta og þekking á teikniforritum.
Góð færni í rituðu máli.
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
Samskiptafærni.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með aðal- og deiliskipulagsverkefnum á vegum bæjarins í samvinnu við sviðsstjóra skipulagssviðs.
Faglegt mat á deiliskipulagsverkefnum verktaka og deiliskipulagstillögum einkaaðila.
Leiðbeina ráðgjöfum og skipulagshönnuðum varðandi málsmeðferð skipulagsmála og framsetningu á skipulagsgögnum.
Umsjón með stjórnsýslu varðandi afgreiðslu skipulagsmála t.d. auglýsingu og kynningarferli skipulagsáætlana.
Annast samskipti við Skipulagsstofnun og aðrar opinberar stofnanir.
Ráðgjöf við viðskiptavini á sviði skipulags- og byggingarmála.
Veita upplýsingar um skipulagsmál til íbúa- og annarra hagsmunaaðila.
Umsjón með kortasjá Akureyrarbæjar.
Auglýsing birt6. apríl 2021
Umsóknarfrestur16. apríl 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (11)

Verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfis- og framkvæmdasviði
Reykjanesbær

Byggingartæknifræðingur
Verksýn

Verkefnastjóri stjórnunarkerfa og gæðamála
Landsnet hf.

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skráninga
Lyfjastofnun

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Skipulagssvið Akureyrarbæjar: Verkefnastjóri skipulagsmála
Akureyri

Rannsóknartæknir
BM Vallá

Aðstoðarmaður ráðgjafa viðhalds og mannvirkja
Verksýn

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf