
Umhverfissvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum.
Undir Umhverfissvið Múlaþings heyra hafnir, slökkvilið, umhverfis-og framkvæmdarmál.

Skipulagsfulltrúi hjá Múlaþingi
Skipulagsfulltrúi á umhverfis- og framkvæmdasviði Múlaþings
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert 100% framtíðarstarf í lifandi umhverfi.
Múlaþing er nýsameinað sveitarfélag og mun á næstu misserum hefjast vinna við nýtt aðalskipulag sem verður mjög áhugaverð og skapandi vinna. Á umhverfis- og framkvæmdasviði Múlaþings starfar öflugur hópur sem samanstendur af vel menntuðum og kraftmiklum einstaklingum.
Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi.
Starfskraftur er með fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstofum Múlaþings; Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði
Þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg
Mikil samskipta- og samstarfshæfni
Nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis
Góð almenn tölvukunnátta
Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta í máli og ritun
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón skipulagsmála í sveitarfélaginu
Útgáfa framkvæmdarleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingaerindi
Umsjón með vinnu við gerð aðalskipulags sameinaðs sveitarfélags
Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulagsbreytinga og byggingaleyfa
Auglýsir skipulagsáætlanir lögum samkvæmt
Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála
Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila
Önnur verkefni sem viðkomanda er falið af framkvæmda- og umhverfismálastjóra
Auglýsing birt17. mars 2022
Umsóknarfrestur19. apríl 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurOpinber stjórnsýslaSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Mechanical Designer
Borealis Data Center ehf.

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Tæknifræðingur eða verkfræðingur sem vill sjá lausnir verða að veruleika
HD Iðn- og tækniþjónusta