Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði í heimahjúkrun Sléttuvegi

Heimahjúkrun Sléttuvegi leitar að öflugum sjúkraliða til starfa við heimahjúkrun. Við Sléttuveg 3,7,9 starfar samþætt teymi heimastuðnings og heimahjúkrunar.

Austurmiðstöð leitar að öflugum sjúkraliðum til starfa í heimahjúkrun við Sléttuveg.

Um er að ræða ótímabundið starf í vaktavinnu í 80-100 % starfi á sólarhringsstað.

Jákvæðni og liðsheild einkennir vinnustaðinn. Lögð er áhersla á þverfaglegt starf í samráði við þjónustuþega sem hafa fjölbreyttar hjúkrunarþarfir.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélagi Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar.
  • Hjúkrunarþjónusta í heimahúsi í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar og þjónustuþega
  • Taka virkan þátt í starfsemi teymis
  • Sinna sérhæfðri hjúkrunarmeðferð í samráði við teymisstjóra
  • Taka þátt í eftirfylgd og mati á hjúkrunaráætlunum í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi 
  • Viðbótarnám er æskilegt. 
  • Starfsreynsla sem sjúkraliði er æskileg.
  • Reynsla af teymisvinnu og vinna með hjúkrunaráætlun er kostur
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Íslenska, gott málfar og góður frágangur á texta ( B1-B2- skv. evrópska tungumálarammanum)
  • Þekking á sjúkraskrákerfinu SÖGU æskileg
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur23. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar