
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Rými fyrir fótaaðgerðastofu til leigu - Furugerði 1
Norðurmiðstöð auglýsir laust til leigu húsnæði fyrir fótaaðgerðastofu að Furugerði 1.
Í Furugerði 1 er þjónustuíbúðakjarni fyrir eldra fólk. Húsnæðið býður upp á góða vinnuaðstöðu í notalegu umhverfi og húsaleigu á sanngjörnu verði. Stofan er opin öllum, jafnt íbúum sem öðrum borgarbúum og opnunartími eftir samkomulagi/sveigjanlegur. Húsnæðið gefur möguleika á fjölbreyttu starfi með skemmtilegu fólki og hvetjum við alla áhugasama til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 15. júní n.k. Nánari upplýsingar veita Kristinn J. Reimarsson framkvæmdastjóri Norðurmiðstöðvar í síma 411-1500, netfang [email protected] og Margrét Albertsdóttir forstöðumaður í síma 411 2742, netfang; [email protected]
Menntunar- og hæfniskröfur
Löggiltur fótaaðgerðafræðingur
Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Furugerði 1, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Heimahjúkrun Norðvestur í nýju og glæsilegu húsnæði
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Lögfræðingur á skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umsjón með eldhúsi í félagsstarfi fullorðinna í Hvassaleiti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í tímabundinni búsetu fyrir karlmenn í miðbænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið