
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Teymisstjóri í heimastuðningi Hátúni
Heimaþjónusta Reykjavíkur Norðvestur óskar eftir öflugum teymisstjóra til að stýra teymi sem sinnir félagslegum heimastuðningi. Um er að ræða ótímabundið starf í dagvinnu.
Unnið er eftir samþættri þjónustu heimastuðnings, heimahjúkrunar og endurhæfingarteymis með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum. Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, s.s. aðstoð við heimilishald, þrif, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl. Veittur er sérstakur stuðningur við ákveðna einstaklinga til að rjúfa félagslega einangrun og við þátttöku í daglegu lífi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á samþættingu þjónustu, daglegri stjórnun, skipulagningu og umsjón með framkvæmd félagslegs heimastuðnings
- Hefur yfirsýn yfir þarfir notenda og veitir upplýsingar og ráðgjöf varðandi þá þjónustu sem í boði er
- Ber ábyrgð á nýmati, endurmati og færni-og heilsumati þjónustunnar
- Gerð þjónustusamnings og stuðningsáætlunar út frá fyrirliggjandi upplýsingum
- Stjórnun starfsmannamála og framkvæmd starfsmannastefnu
- Hefur daglega umsjón með vinnuskipulagi og er starfsmönnum til ráðgjafar og stuðnings í málum sem upp koma í starfi.
- Stýrir fundum og teymisvinnu sem tengjast starfinu
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falinn af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda.
- Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi æskileg.
- Reynsla af verkefna/breytingarstjórnun æskileg
- Reynsla af stjórnun og starfsmannamálum
- Reynsla af þverfaglegu starfi og teymisvinnu
- Þekking á sviði félagslegrar þjónustu
- Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvuþekking
- Íslenskukunnátta á bilinu B2-C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborga.
- Reynsla og þekking á fólki með fjölþættan vanda kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Stytting vinnuvikunnar
- Menningarkort Reykjavíkur
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Auglýsing birt5. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðLeiðtogahæfniSjálfstæð vinnubrögðStarfsmannahaldVaktaskipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Hey! Laust hlutastarf í sumar í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Íbúðakjarninn Rangársel óskar eftir starfsfólki í stöðu stuðningsfulltrúa í fjölbreytt hlutasta
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimahjúkrun Norðvestur í nýju og glæsilegu húsnæði
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtilegt starf á Íbúðakjarna í Breiðholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Rými fyrir fótaaðgerðastofu til leigu - Furugerði 1
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í tímabundinni búsetu fyrir karlmenn í miðbænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

