Leikskólinn Jöklaborg
Leikskólinn Jöklaborg
Leikskólinn Jöklaborg

Sérkennslustjóri - Jöklaborg

Sérkennslustjóri óskast til starfa í leikskólann Jöklaborg sem staðsettur er í Seljahverfi Jöklaseli 4, 109 Reykjavík.

Jöklaborg er sex deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Leiðarljós leikskólans er: Gleði – Virðing – Sköpun. Unnið er meðal annars eftir kenningum Bronfernbrenners og Berit Bae um samskipti og áhersla lögð á sjálfseflingu og félagsfærni sem eru tveir af grundvallarþáttum Menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Aðrir áherslurþættir starfsins eru meðal annars leikur, læsi, sköpun og lýðræði. Námskrá Jöklaborgar, myndband og fjölmargar aðrar upplýsingar um leikskólann má finna á netinu: www.joklaborg.is

Starfið er laust nú þegar.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi. Reynsla af sérkennslu. Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi. Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérkennslustjóri ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum ásamt leikskólastjóra. Hefur umsjón með samskiptum við foreldra, sérkennsluráðgjafa og aðra sem koma að sérkennslu og situr alla fundi er varða sérkennsluna. Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu og gerð einstaklingsnámskráa. Veitir fræðslu, ráðgjöf og stuðning við foreldra og starfsmenn. Að veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning. Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum.
Auglýsing birt14. júlí 2021
Umsóknarfrestur27. júlí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Jöklasel 4, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar