Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sérkennslustjóri í leikskólann Álfastein

Við leitum að metnaðarfullum sérkennslustjóra í tímbundið starf til c.a 6 mánaða. Um er að ræða 100% starf sem skiptist 50% í starf sérkennslustjóra og 50% í starf sérkennara.

Leikskólinn Álfasteinn er fimm deilda leikskóli á Holtinu. Áherslur í starfi leikskólans Álfasteins er í anda John Dewey´s ásamt því að starfa markvisst með einingakubba Caroline Pratt. Í leikskólanum Álfasteini bjóðum við upp á; Húmor, jákvæðni, umhyggjusemi og fjölbreytt starfsumhverfi. Jafnframt bjóðum við upp á líflegar umræður, samstöðu og metnaðarfullt fagstarf. Okkar markmið er að verða framúrskarandi leikskóli.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn) eða starfsleyfi sem þroskaþjálfi
Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum kostur
Reynsla af sambærulegu starfi æskileg
Reynsla af starfi á leikskóla æskileg
Góð færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra
Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
Skipuleggur sérkennslu, gerir skriflegar einstaklingsnámskrár, annast sérkennslu og eftirfylgni
Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa/sérkennslufulltrúa leikskóla og starfsmanna leikskólans
Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu
Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni
Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu
Hefur yfirumsjón með að áherslum um kennslu annarra sérfræðinga sé framfylgt í leikskólanum og að skýrslur séu gerðar
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim
Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf
Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum leikskólans
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu sérkennslustjóra/sérkennara
Auglýsing birt17. febrúar 2021
Umsóknarfrestur2. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar