Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Þroskaþjálfi

Leikskólinn Álfheimar auglýsir eftir þroskaþjálfa frá 1.febrúar 2027.

Leitað er að starfsmanni sem hefur áhuga á að starfa með börnum. Leikskólinn er heilsueflandi skóli á grænni grein ásamt því að mikil áhersla er lögð á útinám. Leiðarljós leikskólans eru Virðing - Hlýja - Traust.

Þroskaþjálfi starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felur í sér stuðning við börn með þroskafrávik.
  • Unnið er í þverfaglegri teymisvinnu þar sem foreldrar gegna stóru hlutverki.
  • Unnið er eftir einstaklingsnámskrá.
  • Áhersla lögð á fagleg vinnubrögð.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þroskaþjálfamenntun eða önnur uppeldismenntun.
  • Reynsla af vinnu með börnum með sérþarfir er æskileg.
  • Ábyrgð í starfi og jákvætt viðhorf.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Lausnamiðuð hugsun.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Íslenskukunnátta er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkort Árborgar
  • Styttri vinnuvika - stytting að hluta til notuð í haustfrí, vetrarfrí, milli jóla og nýárs og dymbilviku
  • Frír matur
Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvellir 6, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar