Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Leikskólakennari

Leikskólinn Álfheimar auglýsir eftir leikskólakennara frá og með 1.febrúar 2027.

Leitað er að leikskólakennara sem hefur áhuga á að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu er á leik, samvinnu, virðingu, hlýju, traust og gleði. Í leikskólanum Álfheimum er virkt lærdómssamfélag og teymisvinna en ásamt því er leikskólinn einnig grænfána leikskóli þar sem lögð er áhersla á útinám.

Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Í stefnu skólans er unnið með leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Virðing, hlýja og traust.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Að fylgist vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar. 
  • Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinnir faglegum verkefnum sem deildarstjóri felur honum. 
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra. 
  • Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra. 
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans. 
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.  
  • Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara.
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.  
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.  
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkort Árborgar
  • Styttri vinnuvika - stytting að hluta til notuð í haustfrí, vetrarfrí, milli jóla og nýárs og dymbilviku.
  • Frír matur
Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvellir 6, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar