Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Sérkennslu­stjóri - Araklettur

Leitað er að sérskennslu­stjóra til starfa á Arakletti á Patreks­firði í 50% starf.

Araklettur er þriggja deilda leikskóli fyrir börn frá 14 mánaða – 6 ára. Við vinnum með Uppeldi til ábyrgðar sem okkar uppeldis- og agastefna. Uppeldi til ábyrgðar stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat.

Leikskólinn byggir einnig starf sitt á kenningum John Dewey um að læra af reynslunni, þar sem börnin eru virkir þátttakendur í skipulagningu og framkvæmd leikskólastarfsins. Leikurinn er náms- og þroskaleið barnsins og er mikilvægt að leiknum sé gefinn góður tími og nægt rými í leikskólanum til að þróast.

Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði og vinátta.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu. Eitt meginverkefni sérkennslustjóra er að vera faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun, Þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Framhaldsnám í sérkennslufræðum eða öðru sem nýtist í starfi æskilegt.
Frumkvæði í starfi, jákvæðni, sjálfstæð vinnubrögð og samskiptahæfni.
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans.
Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim.
Miðlar fræðslu til starfsmanna er tengist sérkennslu.
Auglýsing birt5. ágúst 2022
Umsóknarfrestur1. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar