

Sérkennari eða þroskaþjálfi óskast í Salaskóla
Salaskóla vantar sérkennara eða þroskaþjálfa til loka yfirstandandi skólaárs
Um er að ræða tímabundna ráðningu til loka skólaárs vegna forfalla - en möguleiki á áframhaldandi ráðningu næsta skólaár.
Í Salaskóla vinna kennarar og annað starfsfólk saman í teymum að kennslu og þjálfun nemenda og við undirbúning og skipulagningu náms. Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í starfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og á yfirstandandi skólaári eru nemendur um 530 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa ríflega 100 starfsmenn.
Helstu verkefni snúa að kennslu og þjálfun nemenda með sértækar námslegar þarfir eða aðrar sérþarfir, en einnig atferlisþjálfun, þjálfun í félagsfærni, gerð einstaklingsáætlana og önnur sambærileg verkefni. Viðkomandi mun vinna í þéttu teymissamstarfi með kennurum og öðrum samstarfsaðilum að námi og þroska nemenda.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Ráðning þarf að vera sem fyrst.
- Um 100% starf er að ræða, tímabundið til loka skólaárs með möguleika á ráðningu áfram næsta skólaár.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem þroskaþjálfi eða kennari og leyfisbréf sem slíkur.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni.
- Samstarfshæfni, skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og stundvísi.
- Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans og taka þátt í teymiskennslu/teymisvinnu.
- Vera tilbúin/n í þverfaglegt samstarf og uppbyggileg samskipti við foreldra og nærsamfélag, með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Nauðsynlegt er að hafa gott vald á íslensku, töluðu máli sem og les- og ritmáli.
Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.
Upplýsingar gefa Kristín Sigurðardóttir skólastjóri og Hrefna Björk Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 441-3200/840-2393.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.











