
Sérfræðingur í upplýsinga-, þjálfunar- og gæðamálum
Landhelgisgæsla Íslands leitar að áhugasömum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði þjálfunar- og gæðamála og greiningu upplýsinga á varnarmálasviði stofnunarinnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Um tímabundið starf er að ræða til eins árs með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni:
- Gerð þjálfunaráætlana og þjálfunarefnis ásamt samræmingu þjálfunarmála og stuðningi við stjórnendur
- Móttaka nýliða og eftirfylgni með þjálfun þeirra
- Þjálfun erlends liðsafla og annars starfsfólks sem vinnur á öryggissvæðunum
- Gæðaeftirlitsskoðanir í samráði við gæðastjóra
- Umsjón með gerð handbóka og leiðbeininga fyrir varnarmálasvið
- Úrvinnsla upplýsinga og fjölþætt greiningarvinna
- Skýrslugerð og eftirfylgni
- Samskipti við hagsmunaaðila, s.s. tengdar stofnanir og aðildarþjóðir
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla á sviði gæða- og þjálfunarmála
- Reynsla af greiningu og miðlun gagna
- Þekking á málefnum Atlantshafsbandalagsins er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Fagmennska, skipulagshæfileikar, sjálfstæði og agi í vinnubrögðum
- Frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
- Góð íslenskukunnátta
- Mjög góð enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
- Reglusemi, nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi
- Ökuréttindi
- Vegna eðlis starfs og starfseminnar er búseta á Suðurnesjum kostur
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 230 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska. Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.











