
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Sérfræðingur í Upplifun viðskiptavina á Einstaklingssviði
Ertu drífandi og lausnamiðuð manneskja með einstaka þjónustulund?
Við leitum að sérfræðingi í Upplifun viðskiptavina á Einstaklingssviði sem vill taka þátt í spennandi verkefnum sem hafa bein áhrif á upplifun okkar viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefni sem snúa að lausnum sem bæta upplifun viðskiptavina.
- Aðkoma að innleiðingu nýrrar Vildarþjónustu.
- Aðkoma að markpóstum og gerð herferða gagnvart viðskiptavinum.
- Aðkoma að upplýsinga-, fræðslu- og gæðamálum sviðsins.
- Greina gögn og skýrslur úr CRM kerfum og Power BI.
- Mikið samstarf við framlínu til að tryggja samræmda þjónustu.
- Setja upp kynningar og skýrslur í PowerPoint og Excel.
- Taka þátt í verkefnum sem tengjast þjónustuferlum.
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun við hæfi, t.d. í viðskiptafræði eða tengdum greinum.
- Reynsla af framlínuþjónustu er kostur.
- Góð kunnátta í CRM kerfum, Excel og PowerPoint er nauðsynleg.
- Einstök þjónustulund og hæfni til að vinna í teymi.
- Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiAðlögunarhæfniDrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleikiVandvirkniVinna undir álagiViðskiptasamböndÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Forstöðumaður Stafrænnar þróunar
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Samskiptastjóri
BRÚ Lífeyrissjóður

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg