
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Matráður - Vestmannaeyjar
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í starf matráðs í 50% starfshlutfall í útibú Íslandsbanka í Vestmannaeyjum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 4. janúar 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
Matseld í mötuneyti og daglegur undirbúningur og frágangur í eldhúsi
Hráefnisinnkaup fyrir mötuneyti og kaffistofu
Frágangur og geymsla matvæla
Þrif á eldhúsi og kaffistofu
Eftirlit með tækjum og lausum búnaði í eldhúsi
Annað tilfallandi
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af sambærilegum störfum kostur
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvætt viðmót
Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Strandvegur 26, 900 Vestmannaeyjar
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
