

Sérfræðingur í öryggismálum
Orka Náttúrunnar leitar að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings í ÖHU málum. Réttur aðili lætur annað fólk sig varða, sér öryggismál ekki einungis sem málaflokk og leggur sig fram um að tryggja öryggi og heilsu alls okkar fólks í daglegum störfum. Sérfræðingur heyrir beint undir forstöðumann virkjanareksturs og er með starfsstöð í virkjunum ON.
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn frá Nesjavallavirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Andakílsárvirkjun. Frá Nesjavalla- og Hellisheiðarvirkjunum kemur líka um helmingurinn af heita vatninu í hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Gildi Orku náttúrunnar eru FRAMSÝNI, HAGSÝNI, HEIÐARLEIKI. Við sölu heits vatns og rafmagns er markmiðið að gæta auðlinda landsins og viðskiptavina með sjálfbærni að leiðarljósi.
Helstu verkefni:
- Framfylgja stefnu og markmiðum ON í öryggismálum
- Fylgja eftir verkefnum og kynna niðurstöður
- Þátttaka í öryggisnefnd
- Þátttaka í atvikarannsóknum og fylgja eftir úrbótum
- Skipulagning og utanumhald um þjálfun starfsmanna og verktaka
- Þátttaka í skipulagningu neyðaræfinga
- Uppfærsla og utanumhald á gæðaskjölum (ISO 45001)
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af málaflokknum
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun
- Þekking á gæðastöðlum, vottunarferli og úttektum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
- Framúrskarandi samskipta- og eftirfylgnihæfni
Orka náttúrunnar styður við nýsköpun, sýnir ábyrgð í loftslagsmálum og nýtingu auðlindarinnar og flýtir fyrir orkuskiptum með minna vistspori, samfélaginu öllu til heilla. Orka náttúrunnar rekur nú rúmlega 200 hleðslustöðvar um allt land. Hún rekur Jarðhitagarð við Hellisheiðarvirkjun og nýsköpunarfyrirtæki hafa sprottið upp í samstarfi við Orku náttúrunnar, t.d. Carbfix, Vaxa og Climeworks. Orka náttúrunnar beitir sér fyrir fræðslu um orkuskipti, auðlindir og orkumál.
Nánari upplýsingar:
Daði Hafþórsson, forstöðumaður virkjanareksturs, [email protected]











