Sérfræðingur í mannauðsmálum - tímabundið starf
Ef þú vilt taka þátt í spennandi verkefnum og vinna í skemmtilegu umhverfi þar sem bæði fagleg þróun og vellíðan starfsfólks eru í fyrirrúmi, þá er þetta tækifærið fyrir þig!
Við leitum eftir jákvæðum og framtakssömum einstaklingi í mannauðsteymið okkar sem hefur brennandi áhuga á fræðslumálum. Um er að ræða tímabundið afleysingastarf til 31. mars 2026. Mannauðsteymi Verkís sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum og þar á meðal fræðslu og þjálfun starfsfólks.
Okkur vantar einstakling sem er með menntun á sviði mannauðsstjórnunar eða sambærilega menntun og kostur er að viðkomandi hafi reynslu af skipulagningu fræðslu hjá fyrirtækjum. Mikilvæg er að viðkomandi hafi framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sýni sjálfstæði og sveigjanleika í starfi.
- Umsjón með fræðslumálum fyrirtækisins
- Greining á fræðslu- og þjálfunarþörf í samráði við stjórnendur
- Umsjón með stafrænu fræðslukerfi
- Þátttaka í öðrum verkefnum sem tengjast mannauðsmálum fyrirtækisins
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla á sviði mannauðsmála
- Reynsla af fræðslumálum kostur
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli