

Sérfræðingur í launamálum
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi til liðs við mannauðsteymi Íslandsbanka. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi þar sem nákvæmni, þjónustulund og fagmennska skipta miklu máli. Starfið heyrir beint undir mannauðsstjóra.
Launavinnsla gegnir lykilhlutverki í rekstri bankans og ber ábyrgð á nákvæmum og áreiðanlegum launaútreikningi fyrir starfsfólk. Launavinnsla er hluti af mannauðssviði og starfar náið með fjármálasviði og stjórnendum bankans að tryggja skilvirka, gagnsæja og faglega meðferð launatengdra mála.
Í starfinu gefst tækifæri til að taka þátt í þróun og umbótum á launaferlum, styðja við stjórnendur og starfsfólk með ráðgjöf í launatengdum málum og vinna með fjölbreytt gögn og kerfi.
- Umsjón með launavinnslu og launaútreikningum
- Skráning og eftirfylgni með launatengdum gögnum í launakerfum
- Afstemming launa, bókhaldsgagna og bankareikninga
- Úrvinnsla og uppgjör launatengdra gjalda til opinberra aðila
- Samstarf við stjórnendur og starfsfólk vegna launa- og kjaramála
- Þátttaka í þróun og umbótum á launaferlum og verkferlum
- Önnur verkefni samkvæmt nánara samkomulagi
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af launavinnslu skilyrði
- Þekking á launakerfum skilyrði. Bankinn notar H3 launakerfi
- Góð bókhaldsþekking og skilningur á fjárhagslegum gögnum
- Góð þekking á Excel og hæfni til að vinna með gögn og greiningar
- Framúrskarandi skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í öflugu teymi
- Tækifæri til að taka þátt í þróun og umbótum á ferlum
- Framsýnt og metnaðarfullt starfsumhverfi
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda
- Tækifæri til starfsþróunar og símenntunar
Íslenska
Enska










