VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti á sviði byggðatækni

Langar þig að taka þátt í að byggja upp innviði samfélagsins? Við leitum að öflugum sérfræðingi til starfa við framkvæmdaeftirlit og ráðgjöf á sviði byggðatækni.

Um starfið

Sem sérfræðingur við framkvæmdaeftirlit á sviði byggðatækni munt þú vinna við:

  • Verkumsjón og daglegt eftirlit: Eftirlit með verklegum framkvæmdum á verkstað m.a. við vega-, gatna- og stígagerð , lagningu veitukerfa og ýmiskonar yfirborðsfrágang.
  • Framvindueftirlit: Vöktun og eftirfylgni verkefna í samræmi við tímaáætlanir, gæðakröfur og samninga.
  • Úttektir: Mat og staðfesting á lokum stakra verkhluta og heildarverks, eftirlitsmælingar og úrvinnsla.
  • Öryggi: Mat á öryggi á vinnusvæði framkvæmda og eftirfylgni með öryggisþáttum.
  • Samskiptatengsl: Miðlun upplýsinga og fagleg samskipti við verktaka, verkaupa, hönnuði og aðra hagsmunaaðila.
  • Ýmis framkvæmdaráðgjöf og skýrslugerð: Öflun og úrvinnsla verkefnisgagna, fundargerðir, ýmsar verkgreiningar og áætlanagerð.

Hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi hæfileika og færni:

  • Menntun: Háskólamenntun á sviði verkfræði, tæknifræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla: Starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg, en ekki skilyrði.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð: Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli.

Hvað bjóðum við

Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:

  • Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
  • Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Líflegt félagsstarf.

Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/

Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Byggðatækni, eftirlit.

Auglýsing birt22. desember 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.IðnfræðingurPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar