
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ veitir alhliða verkfræðiráðgjöf með áherslu á trausta og faglega þjónustu og hagkvæmar lausnir. Á skrifstofum VSÓ í Reykjavík og í Noregi starfar yfir 90 manna samhentur hópur verkfræðinga og annarra tæknimenntaðra starfsmanna.

Sérfræðingur í lögnum og loftræsikerfum
Vilt þú taka þátt í að bæta innivist og orkunýtingu? Við leitum að öflugum sérfræðingi við hönnun og ráðgjöf vegna lagna- og loftræsikerfa.
Um starfið
Sem sérfræðingur við hönnun lagna- og loftræsikerfa munt þú vinna við:
- Lagna- og loftræsihönnun: Hönnun allra helstu lagna- og loftræsikerfa ásamt almennri ráðgjöf og eftirfylgni á byggingartíma.
- Áætlanagerð: Gerð kostnaðaráætlana, hönnunar- og verkáætlana, orkuútreikninga o.fl. vegna lagna- og loftræsikerfa.
- Faglegt samstarf: Fagleg samskipti og teymisvinna með hönnuðum annarra fagsviða, verkkaupa, verktaka og öðrum hagsmunaaðilum.
- Gerð útboðsgagna: Gerð verklýsinga og annarra gagna fyrir útboð lagna- og loftræsikerfa.
- Önnur skýrslugerð: Ýmsar greiningar og gagnaúrvinnsla á fagsviði lagna- og lofræsikerfa.
Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:
- Menntun: Menntun á sviði verkfræði eða tæknifræði, með áherslu á lagna- og loftræsikerfi.
- Reynsla: A.m.k. 3ja ára reynsla af verkfræðistörfum á fagsviði lagna- og loftræsikerfa.
- Hugbúnaðarþekking: Góð þekking á Autodesk Revit er skilyrði.
- Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
- Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli. Kunnátta í a.m.k. einu skandinavísku tungumáli er kostur.
Hvað bjóðum við
Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:
- Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
- Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
- Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Líflegt félagsstarf.
Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Lagnir.
Auglýsing birt22. desember 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
TæknifræðingurVerkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Sumarstörf 2026
EFLA hf

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti á sviði byggðatækni
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Fagstjóri veitukerfa
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur í burðarvirkjum
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Verkefnastjórn og framkvæmdaráðgjöf byggingarframkvæmda
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Tæknistjóri laxvinnslu
First Water

Rekstrarstjóri viðhalds / Maintenance Superintendent
Alcoa Fjarðaál

Við byggjum upp samfélög – vilt þú taka þátt?
Verkís

Yfirmaður tæknideildar - Borgarnes
Steypustöðin

Sviðsstjóri og Verkefnastjóri hjá Faxaflóahöfnum sf.
Faxaflóahafnir sf.

Tech Lead – Maintenance domain
Icelandair

Senior Maintenance Manager
Climeworks