
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Sérfræðingur í fósturteymi
Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sérfræðingi í fósturteymi stofunnar. Um er að ræða 100% starf. Barna- og fjölskyldustofa veitir og styður við þjónustu í þágu barna og stuðlar að gæðaþróun í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Starfið heyrir undir teymisstjóra fósturteymis. Starfsstöð er í Borgartúni 29 í Reykjavík en starfið getur krafist þess að viðkomandi ferðist um landið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fræðsla og faglegur stuðningur við fósturforeldra
- Úrvinnsla og gerð umsagna um mat á hæfni fósturforeldra
- Halda skrá um fósturforeldra og fósturbörn
- Afgreiðsla, mat og úrvinnsla umsókna frá barnaverndarþjónustum
- Ráðgjöf, handleiðsla og leiðbeiningar í einstaka málum til barnaverndar, annarra fagaðila og fósturforeldra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Krafa um meistarapróf í félagsráðgjöf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og hæfni til að meta upplýsingar um umönnunar- og meðferðarþörf barna.
- Reynsla og þekking á starfi barnaverndar og fósturmálum kostur.
- Framúrskarandi samskiptahæfni, sveigjanleiki og þjónustulund.
- Mjög góð hæfni í textagerð.
- Skipulagshæfni, nákvæm og öguð vinnubrögð.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og færni til að vinna í teymi.
- Mjög góð íslenskukunnáttu og góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur5. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - helgarvinna á laugardögum í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Félagsráðgjafi
Grindavíkurbær

Tvær stöður Félagsráðgjafa í barnaverndarþjónustu Árborgar
Sveitarfélagið Árborg

Málastjóri í Laufeyjarteymi
Landspítali

Tengiliður farsældar barna - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær

Skólaþjónusta: Sérfræðingur í farteymi
Akureyri

Náms- og starfsráðgjöf í öflugu fagteymi
Þekkingarnet Þingeyinga

Okkur vantar liðsauka.
Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis