
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum.
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Sérfræðingur í fjárhagsdeild
Ert þú öflugur og metnaðarfullur sérfræðingur sem brennur fyrir stöðugum umbótum í starfi?
Þá er þetta mögulega rétta tækifærið fyrir þig!
Íslandsbanki leitar að öflugum, umbótasinnuðum og metnaðarfullum einstaklingi í Fjárhagsdeild á fjármálasviði. Í Fjárhagsdeild starfar samhentur og framsækinn hópur sérfræðinga sem af fagmennsku skilar uppgjörum sem gefa glögga mynd af rekstri og efnahag bankans. Næsti yfirmaður er deildarstjóri innan fjárhagsdeildar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bókhald, greiningar, uppgjör og skýrslugerð sjóða og lífeyrissjóða
- Vinna við árs- og árshlutauppgjör Íslandssjóða
- Daglegir gengisútreikningar sjóða og safna
- Samskipti og samvinna með hagaðilum innan og utan bankans
- Þátttaka í umbótum, þróun ferla og sjálfvirknivæðing
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Marktæk starfsreynsla í sambærilegum störfum
- Marktæk þekking og reynsla á tölvu- og bókhaldskerfum
- Reynsla af SQL fyrirspurnarmáli og þekking á PowerBI kostur
- Reynsla af störfum af endurskoðunarstofu kostur
- Gott vald í mæltu og rituðu máli á íslensku
Auglýsing birt11. febrúar 2026
Umsóknarfrestur25. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingÁkveðniÁreiðanleikiÁrsreikningarAðlögunarhæfniDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiGreiningarfærniHeiðarleikiHönnun ferlaHreint sakavottorðInnleiðing ferlaJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniPower BISjálfstæð vinnubrögðSjálfvirknivæðingSkipulagSQLStundvísiSveigjanleikiTeymisvinnaUppgjörVandvirkniVinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri - stafræn markaðssetning
Vistor

Sérfræðingur á fjármálasviði
Tryggingastofnun

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT Bókað ehf á Suðurlandi
ECIT

Fyrirtækjaráðgjafi - Reykjanesbær
Íslandsbanki

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica

Viðskiptastjóri – Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið
Íslandsbanki

Bókari
Verne

Financial controller
Verne

Söluráðgjafi - Einstaklingssvið
Íslandsbanki

Við erum að ráða í fjármáladeild Deloitte
Deloitte

Fjölbreytt starf í sjóðastýringarfélagi
Viska sjóðir ehf.

Sérfræðingur í rekstri og upplýsingamiðlun
Mannréttindastofnun Íslands