

Sérfræðingur á sviði tjáskipta í sérdeild
Auglýst er 100% staða sérfræðings í Sérdeild Sunnulækjarskóla frá 1. ágúst 2025
Sérdeild Sunnulækjarskóla, Setrið, auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum starfsmanni í fullt starf frá 1. ágúst. Starfsmaður veitir til að mynda leiðsögn og ráðgjöf til foreldra, kennara og annarra starfsmanna ásamt því að þjálfa og styðja við nám nemenda er þurfa á sértækum stuðningi til tjáskipta.
Setrið er deild í Sunnulækjarskóla þar sem rúmlega 30 börn stunda nám. Deildin veitir nemendum með sérþarfir fjölbreytt nám sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu. Áhersla er lögð á að nemendur geti þroskað persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu og verið félagslega virkir þátttakendur í skólasamfélaginu þar sem byggt er á styrkleikum þeirra.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Starfsmaður vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk deildarinnar, skóla og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra.
- Er ráðgefandi fyrir aðra fagaðila sem vinna með börn með tjáskiptavanda.
- Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra
- Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum, teymisáætlun og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við þroskaþjálfa, kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
- Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
- Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum
- Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
- Reynsla af sambærilegum störfum
- Reynsla af teymisvinnu
- Færni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Þekkja réttindi barna til tjáskipta
- Vita hvaða tjáskiptaleiðir eru í boði
- Þekking á óhefðbundnum tjáskiptaleiðum er áskilin
- Geta nýtt sér fjölbreyttar tjáskiptaleiðir í starfi
- Þekkja muninn á kjarnorðaforða og jaðarorðaforða (fringe vocabulary)
- Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) er æskileg












