ECIT Virtus
ECIT Virtus
ECIT Virtus

Sérfræðingur á launasvið

ECIT Virtus er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði bókhalds- og launavinnslu sem m.a. rekur eina af stærstu launadeildum landsins og reiknar og afgreiðir í hverjum mánuði hátt í fimm þúsund launaseðla fyrir einstaklinga og fyrirtæki, innlend og erlend.

ECIT Virtus leitar að öflugum einstaklingum í teymi sérfræðinga sem geta hafið störf sem fyrst. Leitað er að sérfræðingum í bæði fullt starf og hlutastarf.

Hjá ECIT Virtus starfa tæplega 30 sérfræðingar í bókhalds- og launavinnslu. Störf og verkefni hjá ECIT Virtus eru óháð stað og tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Útreikningar á launum og tengdum gjöldum
  • Samskipti við lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila
  • Almenn ráðgjöf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla/Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af bókhalds- og launakerfum
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Talnagleggni og tölvufærni
  • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
Auglýsing birt27. febrúar 2024
Umsóknarfrestur10. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skipholt 50D, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar